Gluggar og hurðir

Allt er sérsmíðað eftir máli hjá framleiðendum okkar og afhent á lager okkar á Flugumýri 14. Hér eru efnisgerðirnar og vörulínurnar, með hlekk á CE-yfirlýsingu hverrar línu.

Ál-tré gluggar og hurðir

Timbur að innan og álklæðning að utan. Álið ver timbrið fyrir veðri og að innan er hlýlegt timburyfirborð. Gluggarnir eru slagregnsprófaðir og CE merktir. ARLA Wood gluggar og hurðir frá Arlanga Wood má nota í Svansvottaðar byggingar (aðeins ARLA Wood, sjá Leiðbeiningar og vottun). Við bjóðum einnig glugga og hurðir fyrir verk þar sem BREEAM vottunar er krafist.

  • Ekki þarf að mála að utan
  • Annar litur úti en inni ef óskað er
  • Gluggar og hurðir opnast út

Vörulínur

ARLA-Iceland 64 · Arlanga Wood · gluggar · CE-yfirlýsing (PDF)

ARLA 64 · Arlanga Wood · gluggar og útihurðir · CE-yfirlýsing (PDF)

D115/56 GAMA S · Langų Gama · gluggar og útihurðir · CE-yfirlýsing (PDF)

D115/56 GAMA S+V · Langų Gama · gluggar og útihurðir · CE-yfirlýsing (PDF)

Mynd: ál-tré gluggi

Timburgluggar og hurðir

Klassískir timburgluggar í þeim lit sem þú velur. Þeir henta jafnt í nýbyggingar og þegar skipt er um glugga í eldri húsum þar sem útlitið á að halda sér. Gluggarnir eru slagregnsprófaðir og CE merktir. ARLA Wood gluggar og hurðir frá Arlanga Wood má nota í Svansvottaðar byggingar (aðeins ARLA Wood, sjá Leiðbeiningar og vottun). Við bjóðum einnig glugga og hurðir fyrir verk þar sem BREEAM vottunar er krafist.

  • Timbur sýnilegt bæði úti og inni
  • Álvatnsbretti að neðan er staðalbúnaður
  • Gluggar og útihurðir í sömu línu

Vörulínur

ARL 64 · Arlanga Wood · gluggar og útihurðir · CE-yfirlýsing (PDF)

D115/56 · Langų Gama · gluggar og útihurðir · CE-yfirlýsing (PDF)

Mynd: timburgluggi

PVC gluggar og hurðir

Sérsmíðaðir gluggar og hurðir úr REHAU Nordic Design Plus prófílum, smíðuð hjá Arlanga PVC. Útlitið líkir eftir hefðbundnum timburglugga og hentar því bæði í nýbyggingar og endurbætur.

  • Þarf ekki að mála og er einfalt að þrífa
  • Ryðgar ekki og tærist ekki
  • Oft ódýrari en timbur og ál-tré

Vörulínur

ARLA PVC · Arlanga PVC · fastir, topphengdir og hliðarhengdir gluggar og hurðir · CE-yfirlýsing (PDF)

REHAU Nordic Design Plus

Álgluggar, álhurðir og glerveggir

Álgluggar, álhurðir, rennihurðir og glerveggir úr prófílakerfum frá Reynaers. Ál hentar þar sem glerfletir eru stórir eða umgangur mikill, til dæmis í atvinnuhúsnæði og fjölbýli.

  • Grannir prófílar og stórir glerfletir
  • Rennihurðir, glerveggir og eldvarnarhurðir
  • Lítið viðhald

Kerfi

CS 77 · Reynaers · gluggar og hurðir, inn- og útopnanleg

CP 130 · Reynaers · rennihurðir og lyftirennihurðir

MasterPatio · Reynaers · rennihurðir með grönnum prófílum

CW 50 · Reynaers · glerveggir

CS 77 FP · Reynaers · eldvarnarhurðir, EI 30 og EI 60

Reynaers CS 77 álhurð í CW 50 glervegg · Jötnahella

Það sem þú velur

Mál. Allt er smíðað eftir máli út frá teikningum eða gluggalista. Framleiðsluteikningar eru sendar til samþykktar áður en smíði hefst.

Litir. RAL-litir að eigin vali. Á ál-tré gluggum má hafa annan lit úti en inni, til dæmis svart úti og hvítt inni.

Gler. Einangrunargler með argonfyllingu. Hert eða samlímt öryggisgler þar sem þess þarf. Við förum yfir glerþykkt miðað við stærð glugga og vindálag.

Opnun. Fastir gluggar, topphengd og hliðarhengd fög og hurðir sem opnast inn eða út, til hægri eða vinstri.

Frágangur. Álvatnsbretti er staðalbúnaður á timburgluggum. Gluggar geta komið með Adjufix-festingum.

Hurðabúnaður frá ASSA ABLOY

Sjálfvirkur búnaður fyrir rennihurðir og hurðir á lömum, og hurðapumpur.

SL500 rennihurðabúnaður. Fyrir hurðablöð allt að 1 × 240 kg eða 2 × 200 kg. 150 mm á hæð. Samþykktur fyrir neyðarútganga með 24 V vararafhlöðu. Bæklingur (PDF)

SW300 hurðaopnari. Hljóßlátur rafmagnsopnari fyrir hurðir á lömum, aðeins 70 mm á hæð. Samþykktur fyrir brunahurðir E30 til EI30. Bæklingur (PDF)

EV300 hurðapumpa. Fyrir hurðir allt að 1.200 mm á breidd. Stillanlegur lokunarhraði. Bæklingur (PDF)

U234 hurðapumpa. Fyrir léttari hurðir, 850 til 1.100 mm á breidd. Stillanlegur lokunarhraði. Bæklingur (PDF)

Mynd: ASSA ABLOY SL500

Tilboð

Sendu okkur teikningar eða gluggalista og við sendum sundurliðað tilboð með framleiðsluteikningum.

Leiðbeiningar og vottun